New Title

 Flokkar

 

Verðlaun eru veitt í eftirtöldum flokkum:


 

1. Kvikmyndaðar auglýsingar- lengri


Auglýsingar, 30–180 sekúndur, leiknar, ljósmyndaðar eða teiknaðar, sem birtar eru í keyptum miðlum (sjónvarpi, kvikmyndahúsum, samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum). Innsendingin er takmörkuð við þrjár auglýsingar í fullri lengd séu þær hluti af sömu herferð en samanlögð lengd auglýsinga skal ekki fara yfir 3 mínútur.

Ekki er leyfilegt að senda sömu auglýsingu í báða flokka, styttri og lengri.

 

2. Kvikmyndaðar auglýsingar- styttri


Auglýsingar 0–45 sekúndur, leiknar, ljósmyndaðar eða teiknaðar, sem birtar eru í keyptum miðlum (sjónvarpi, kvikmyndahúsi, samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum). Innsendingin getur verið sería af stuttum auglýsingum sem tilheyra sömu herferð, en er takmörkuð við 5 auglýsingar. Auglýsingarnar skulu vera hugsaðar frá upphafi sem stuttar auglýsingar en ekki styttar útgáfur af lengri auglýsingu.

Samanlögð lengd auglýsinga skal ekki fara yfir 3 mínútur.

Ekki er leyfilegt að senda sömu auglýsingu í báða flokka, styttri og lengri.

 

3. Hljóðauglýsingar

 

Auglýsingar sem gerðar eru sérstaklega fyrir og birtar á keyptum hljóðmiðlum s.s. í útvarpi og á stafrænum miðlum. Hljóðrásir af sjónvarpsauglýsingum eru ekki gildar. Innsendingin er takmörkuð við 1–3 auglýsingar innan sömu herferðar. Hámarkstími í spilun má ekki fara yfir 2 mínútur.


4. Prentauglýsingar

 

Auglýsingar sem gerðar eru til birtinga í dagblöðum og/eða tímaritum. Innsendingin er takmörkuð við þrjár auglýsingar séu þær hluti af sömu herferð. 


5. Stafrænar auglýsingar

 

Auglýsing sem nýtir stafræna miðla til að koma skilaboðum til skila, vekja hughrif hjá markhóp eða styrkja ímynd (án þess að krefjast neinnar þátttöku). Undir þennan flokk falla allir stafrænir miðlar s.s. vefborðar, samfélagsmiðlar, míkrósíður, o.s.frv. Innsendingin er takmörkuð við 1–5 auglýsingar sömu herferðar. Hámarkstími myndbanda í spilun má ekki fara yfir 3 mínútur.


6. Stafrænar auglýsingar- Gangvirkar/virkjun


Auglýsingar sem nýta stafræna miðla til að virkja markhóp til þátttöku á einhvern hátt. Undir þennan flokk falla allir stafrænir miðlar s.s. vefborðar, samfélagsmiðlar, míkrósíður, leikir, smáforrit o.s.frv. Hér er verðlaunað efni sem hefur virkjað skilgreindan markhóp á skýran, málefnalegan og skapandi hátt og dæmt er út frá því hversu skapandi hugmynd var og hversu vel útfærð. Sýna má viðbrögð markhóps í þeim tilgangi að útskýra hvernig hugmyndin var útfærð, þó án þess að birta tölur um fjölda eða árangur. Hér má einnig senda inn hlekk á vefsvæði eða samfélagsmiðla til að hægt sé að skoða virknina. Innsendingin er takmörkuð við 1–5 auglýsingar innan sömu herferðar. Hámarkstími myndbanda í spilun má ekki fara yfir 3 mínútur.


7. Umhverfisauglýsingar

 

Þrívíð grafík eða innsetning í umhverfi, til auglýsinga á vöru og/eða þjónustu (ekki hreyft efni). Innsendingin er takmörkuð við þrjár auglýsingar séu þær hluti af sömu herferð.

 

8. Veggspjöld og skilti

 

Tvívíð grafík, t.d. á hefðbundnum veggspjöldum og/eða umhverfisskiltum. Undir þennan flokk fellur ekki hreyfð grafík. Innsendingin er takmörkuð við þrjár auglýsingar séu þær hluti af sömu herferð. 

 

9. Viðburðir

 

Sýningarbásar eða viðburðir sem vekja athygli á vöru og/eða þjónustu, eða byggja upp ímynd fyrirtækis með því að virkja skilgreindan markhóp til þátttöku.

Innsendingin er takmörkuð við 1–5 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Ef myndband/myndbönd er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 2 mínútur.


10. Bein markaðssetning

 

Bein markaðssetning er t.d. markpóstur á prentuðu eða rafrænu formi, hlutur eða gjörningur sem sendur er á fyrirfram skilgreindan hóp. Lágmarksfjöldi markhóps er 30 einstaklingar/fyrirtæki. 

Innsendingin er takmörkuð við 1–5 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Ef myndband/myndbönd er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 2 mínútur.


Ef þörf þykir á að koma eintaki af hlut/prenti til dómnefndar má gera það í samráði við framkvæmdastjóra ÍMARK í beinu framhaldi af innsendingu.

 

11. Mörkun - ásýnd vörumerkis

 

Mörkun eða endurmörkun fyrirtækis tekur til nýrra eða eldri vörumerkja. Um er að ræða breytingar á heildarásýnd vörumerkis: merki, útliti, tóni o.s.frv. Sýna skal útlit fyrir og eftir breytingu sé um endurmörkun að ræða. Leyfilegt er að senda inn hreyfða útfærslu á merki og myndband sem sýnir mörkunina .

Innsendingin er takmörkuð við 1–15 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Hámarks spilunartími myndbanda samtals má ekki vera lengri en 3 mínútur og forðast skal endurtekningu á því efni sem birtist í myndbandi í innsendingu.


12. PR

 

Hér skulu innsendingar sýna hvernig strategísk PR-vinnubrögð og skapandi aðferðir hafa verið notuð til að koma tilteknum boðskap á framfæri. Hér er horft til þess hversu frumleg, skapandi og vel útfærð hugmyndin er. 

Innsendingin er takmörkuð við 1–10 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Ef myndband/myndbönd er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 3 mínutur en athugið að ekki má setja inn „case study“ myndband um verkefnið.


13. Herferð

 

Herferð sýnir hvernig ólíkir miðlar voru nýttir á skapandi og viðeigandi hátt, til að mynda eina heild og koma koma sömu skilaboðum til ákveðins markhóps, eða hafa áhrif á ímynd fyrirtækis á heildrænan og samhentan hátt. 

Ekki skal senda inn kynningarmyndband á herferðinni sem heild, heldur einungis stakar myndir og myndbönd af einstökum hlutum hennar. 

Innsendingin er takmörkuð við 1–15 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Ef myndband/myndbönd er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 7 mínútur.


Almannaheillaauglýsingar

Undir þennan flokk falla allar auglýsingar félagasamtaka sem starfa í almannaþágu og þær auglýsingar opinberra aðila sem ætlað er að stuðla að almannaheill. Auglýsingar opinberra aðila sem eiga að einungis að bæta ímynd eða skila fjárhagslegum ávinningi falla ekki hér undir.


 

14. Almannaheillaauglýsingar – Kvikmynduð auglýsing

 

Undir þennan flokk falla kvikmyndaðar auglýsingar, leiknar, ljósmyndaðar eða teiknaðar, sem birtar eru í keyptum miðlum (í sjónvarpi, kvikmyndahúsum, á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum). Undir almannaheillaflokka falla allar auglýsingar félagasamtaka sem starfa í almannaþágu og þær auglýsingar opinberra aðila sem ætlað er að stuðla að almannaheill. Auglýsingar opinberra aðila sem eiga einungis að bæta ímynd eða skila fjárhagslegum ávinningi falla ekki hér undir. Innsendingin er takmörkuð við fimm auglýsingar séu þær hluti af sömu herferð, en samanlögð lengd auglýsinga skal ekki fara yfir 3 mínútur.

 

15. Almannaheillaauglýsingar - Herferðir

 

Herferð sýnir hvernig ólíkir miðlar voru nýttir á skapandi og viðeigandi hátt, til að mynda eina heild og koma koma sömu skilaboðum til ákveðins markhóps, eða hafa áhrif á viðhorf á heildrænan og samstæðan hátt. 

Undir almannaheillaflokka falla allar auglýsingar félagasamtaka sem starfa í almannaþágu og þær auglýsingar opinberra aðila sem ætlað er að stuðla að almannaheill. Auglýsingar opinberra aðila sem eiga einungis að bæta ímynd eða skila fjárhagslegum ávinningi falla ekki hér undir. Ekki skal senda inn kynningarmyndband á herferðinni sem heild, heldur einungis stakar myndir og myndbönd af einstökum hlutum hennar. 

Innsendingin er takmörkuð við 1–15 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Ef myndband/myndbönd er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 7 mínútur.

 

16. Almannaheillaauglýsingar - Opinn flokkur

 

Undir þennan flokk falla stakar almannaheillaauglýsingar aðrar en kvikmyndaðar auglýsingar, t.d. prentaðar auglýsingar, stafrænar auglýsingar, umhverfisgrafík o.s.frv. og gilda sömu reglur og fyrir þá flokka sem efnið hefði fallið undir ef það væri ekki almannaheillaefni. Undir almannaheillaflokka falla allar auglýsingar félagasamtaka sem starfa í almannaþágu og þær auglýsingar opinberra aðila sem ætlað er að stuðla að almannaheill. Auglýsingar opinberra aðila sem eiga einungis að bæta ímynd eða skila fjárhagslegum ávinningi falla ekki hér undir.
Innsendingin er takmörkuð við 1–10 skrár innan sömu herferðar (myndir eða myndbönd). Ef myndband/myndbönd er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 3 mínútur.

Share by: